Fylgst verður náið með forsetakosningum á mbl.is í dag og fram á nótt.
Teymi fréttamanna og ljósmyndara verður á ferðinni á milli kosningavaka frambjóðenda til að fanga stemningu og viðbrögð við fyrstu tölum og úrslitum.
Kjörstöðum verður lokað kl. 22 og fljótlega má vænta fyrstu talna. Greint verður frá þeim á mbl.is um leið og þær berast, bæði í texta og í grafík.