Ísland endaði í 14. sæti á Evrópumótinu í brids, sem lauk í Búdapest í Ungverjalandi í dag. Frakkar urðu Evrópumeistarar í opnum flokki.
Íslenska liðið átti ágætan endasprett. Það vann Þýskaland, sem endaði í 5. sæti, í síðustu umferðinni og Tyrki í þeirri næstsíðustu.
Svíar urðu í 2. sæti á mótinu og Hollendingar í því þriðja. Mónakó varð í 4. sæti, Þjóðverjar í 5. sæti, Ítalir í 6. sæti og Búlgarar í 7. sæti en sjö efstu þjóðirnar unnu sér keppnisrétt á heimsmeistaramótinu á næsta ári.