Milljónirnar flugu út

Lottó.
Lottó.

Lottópotturinn, sem var áttfaldur, gekk út í kvöld. Tveir vinningshafar duttu heldur betur í lukkupottinn en hvor um sig fær 54,8 milljónir í sinn hlut. Þá var einn með allar tölur réttar í Jókernum og er hann nú tveimur milljónum króna ríkari.

Þá voru átta með bónusvinninginn, þ.e. fjórar aðaltölur réttar auk bónustölu. Hver þeirra hlýtur 138.120 kr. í sinn hlut. 

Loks voru fimm vinningshafar með fjórar tölur réttar í Jókernum og fær hver og einn 100.000 kr. í vinning.

Lottópotturinn verður því einfaldur eftir viku.

Vinningstölur kvöldsins eru: 6-12-19-20-40. Bónustalan 33.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert