Skjálfti upp á 4,0 í Bárðarbungu

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Jarðskjálfti af stærð 4,0 varð á norðurbrún Bárðarbunguöskjunnar klukkan 13:17 í dag samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Um 20 eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið. Þeir stærstu mældust 3,2 klukkan 13:18 og 3,9 klukkan 13:45.

Einnig mældist skjálfti af stærð 3,5 á suðurbrún Bárðarbunguöskjunnar klukkan 7:19 í morgun. Hrinan stóð yfir milli klukkan 13:15 og 14:00 en virknin hefur róast talsvert síðan.

Skjálftinn klukkan 13:17 er þriðji stærsti skjálfti frá goslokum í Holuhrauni í febrúar 2015. Alls hafa mælst 55 jarðskjálftar stærri en 3 og þrír skjálftar stærri en 4 síðan þá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert