Starfshópur Reykjavíkurborgar um framtíð Laugardalsvallar átti að skila af sér hugmyndum um völlinn til borgarstjóra þann 15. júní síðastliðinn en hefur ekki enn skilað af sér.
Eins og komið hefur fram hefur Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ) lýst yfir áhuga á að ganga til viðræðna við Reykjavíkurborg um hugsanleg kaup sambandsins á Laugardalsvelli án fjárhagslegrar aðkomu borgarinnar.
Sambandið óskaði eftir formlegum viðræðum við Reykjavíkurborg um framtíð Laugardalsvallar en KSÍ hefur unnið að þróun hugmynda um uppbyggingu vallarins.