Sundlaugargestir í Laugardalslaug kvörtuðu til lögreglu um klukkan níu í morgun yfir dróna sem flogið var yfir laugarsvæðið.
Lögreglumenn komust að því á hvers vegum dróninn var og reyndist það vera erlendur ferðamaður. Hann tók afskiptum lögreglu vel og ætlaði að láta af iðju sinni.