Bílvelta varð á Strandarheiði mitt á milli Keflavíkur og Reykjavíkur klukkan 17:30 í dag. Þrír voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar en meiðsl þeirra eru ekki talin alvarleg. Allri vinnu er lokið á vettvangi.
Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu fóru sjúkrabílar bæði frá höfuðborgarsvæði og frá Brunavörnum Suðurnesja á svæðið þar sem slysið var á miðju vegar.