Tilkynnt var um hugsanlegt heimilisofbeldi í húsi í Austurbæ Reykjavíkur skömmu fyrir klukkan níu í gærkvöldi. Lögregla handtók ölvaðan karlmann á vettvangi sem fór ekki að fyrirmælum lögreglu og neitaði að segja til nafns og kennitölu. Maðurinn var vistaður í fangageymslu vegna frekari rannsóknar.