Nokkur erill hjá slökkviliði

Slökkviliðið sinnti 29 útköllum í nótt.
Slökkviliðið sinnti 29 útköllum í nótt. mbl.is

Nokkur erill var hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í nótt en tók að róast undir morgun. Liðið sinnti alls 29 útköllum en um klukkan þrjú í nótt barst liðinu ósk um aðstoð vegna vatnsleka í miðborginni. Töluvert vatn hafði flætt í stóru rými og þurfti að dæla þó nokkru magni vatns úr húsnæðinu sem er hótel í byggingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert