Vætusamt veður í dag

Spáð er rigningu víða um land, þar á meðal í …
Spáð er rigningu víða um land, þar á meðal í höfuðborginni, í dag. mbl.is/Ómar

Veðurstofan spáir vætusömu veðri víða um land í dag. Þó verður úrkomuminna norðan og austan til en annars staðar á landinu og mun síðan draga úr úrkomu þegar líður á daginn, einna síðast á Vestfjörðum og Norðausturlandi.

Spáð er suðlægri átt, þremur til átta metrum á sekúndu, í dag og hita á bilinu sjö til átján stig. Verður hlýjast norðaustan til á landinu.

Á morgun, mánudag, er síðan gert ráð fyrir breytilegri átt, þremur til tíu metrum á sekúndu, og skúrum í flestum landshlutum. Verður heldur svalara í veðri.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert