Alls staðar tekið fagnandi

Mjög gott orð fer af íslensku stuðningsmönnunum í Frakklandi og er þeim tekið fagnandi hvert sem þeir fara.

Að sögn lögreglunnar hafa stuðningsmennirnir heilt yfir hagað sér vel á Evrópumótinu og verið til fyrirmyndar. Alltaf eru einhver mál sem koma upp en öll hafa þau verið auðleysanleg og smávægileg.

Blaðamaður mbl.is í Nice í Frakklandi ræddi við lögreglumann síðdegis í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert