Karlmaður á miðjum aldri sem fannst meðvitundarlaus fyrir utan heimili sitt í Brekkuhverfinu í Kópavogi um tíuleytið á laugardagskvöld hefur verið útskrifaður af Landspítalanum.
Maðurinn var með mikla áverka þegar hann fannst en orsök málsins liggur ekki fyrir.
Engin vitni hafa gefið sig fram og hefur maðurinn ekki getað greint frá atvikum. Þá hefur lögregla ekki vísbendingar um málið, sem er áfram til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Frétt mbl.is: Meðvitundarlaus með mikla áverka