Stuð og stemmning í miðbænum – myndir

mbl.is/Eggert

Það er mikið stuð og stemmning í miðbænum eftir ótrúlegan sigur Íslands á Englendingum fyrr í kvöld. Þúsundir manna fylgdust með leiknum á risaskjá á Arnarhóli en svo virðist sem flestir hafi ekki lagt af stað heim strax, heldur ákveðið að taka þátt í fögnuðinum.

Má segja að sannkölluð karnívalstemmning sé í miðbænum og verður sennilega fram á nótt. Ljóst er að kvöldið mun renna Íslendingum seint úr minni.

Ljósmyndarar mbl.is eru á vettvangi til þess að fanga stemmninguna.

mbl.is/Eggert
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert