Vinna aðgerðaáætlun fyrir Vestfirði

Ísafjörður. Myndin er úr safni.
Ísafjörður. Myndin er úr safni. mbl.is/Sigurður Bogi

Skipuð hefur verið nefnd sem á að vinna aðgerðaáætlun á sviði samfélags- og atvinnuþróunar fyrir Vestfirði. Vinnan er undir forystu forsætisráðuneytisins en mun fara fram í nánu samstarfi við þau ráðuneyti sem við eiga og í samráði við stýrihóp ráðuneytanna um byggðamál, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Í nefndinni sitja: Ágúst Bjarni Garðarsson, fulltrúi forsætisráðuneytisins og formaður nefndarinnar, Hanna Dóra Hólm Másdóttir, fulltrúi atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, sem jafnframt er starfsmaður nefndarinnar, Daníel Jakobsson, fulltrúi norðanverðra Vestfjarða, Aðalbjörg Óskarsdóttir fulltrúi Stranda og Reykhólahrepps, og Valgeir Ægir Ingólfsson, fulltrúi sunnanverðra Vestfjarða.

Samráð verður haft við Fjórðungssamband Vestfjarða við mótun tillagna.

Gert er ráð fyrir að nefndin skili tillögum eigi síðar en 31. ágúst næstkomandi. Ekki er greitt sérstaklega fyrir störf í nefndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert