Aron stjórnaði víkingaöskrinu

Aron Einar Gunnarsson og aðrir landsliðsmenn tóku vel undir víkingahrópið …
Aron Einar Gunnarsson og aðrir landsliðsmenn tóku vel undir víkingahrópið á leikvanginum í Nice. AFP

Aron Einar Gunnarsson fyrirliði var eins og stjórnandi sinfóníuhljómsveitar er hann stýrði hinu fræga víkingahrópi íslenskra stuðningsmanna eftir að úrslitin voru ljós í leik Íslendinga og Englendinga á EM í Nice.

Sjón er sögu ríkari. Myndskeið af þessari mögnuðu uppákomu er hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert