Færri héldu áfram námi

Hlutfall 20 ára nemenda sem sækir skóla hefur ekki verið …
Hlutfall 20 ára nemenda sem sækir skóla hefur ekki verið lægra frá árinu 2000. Myndin er úr safni. mbl.is/Eggert

Nemendum á skólastigum fyrir ofan grunnskóla fækkaði um 3,4% frá haustinu 2013 til 2014 samkvæmt tölum sem Hagstofan hefur tekið saman. Fækkun nemenda á háskólastigi vegur þar þyngst.

Alls stunduðu 43.924 manns nám á hærra stigi en grunnskóla haustið 2014 og fækkaði um 1.533 nemendur frá fyrra ári. Skólasókn nemenda (hlutfall af aldurshópi) á háskólastigi var minni en haustið 2013 í öllum árgöngum 20–29 ára að undanskildum 23 ára hópnum. Alls sóttu 19.911 karlar nám og 24.013 konur. Körlum við nám fækkaði um 520 frá fyrra ári (2,5%) en konum um 1.013 (4,0%).

Á framhaldsskólastigi stunduðu 24.104 nemendur nám og fækkaði um 2,4% frá fyrra ári, að því er segir í frétt á vef Hagstofunnar. Á viðbótarstigi voru 880 nemendur og fjölgaði um 1,4%.

Á háskólastigi í heild voru 18.940 nemendur og fækkaði um 4,8% frá haustinu 2013. Nemendum í námi til doktorsgráðu hefur fjölgað ár frá ári frá 2001, að undanskildum árunum 2010–2011, þegar þeim fækkaði um 5,4%. Doktorsnemar voru 519 haustið 2014 og hafa aldrei verið fleiri. Þeim fjölgaði um 28 (5,7%) frá hausti 2013. Hins vegar fækkaði nemendum í námi til meistaragráðu um 342 (7,4%) og voru 4.285 haustið 2014. Nemendum í námi til fyrstu háskólagráðu og í námi til grunndiplóma fækkaði einnig.

Minnst skólasókn á meðal innflytjenda

Alls sóttu 95,4% 16 ára framhaldsskóla haustið 2014, 96,3% stúlkna og 94,5% drengja. Þá sóttu 81,3% 18 ára nemenda skóla, fleiri stúlkur en drengir. Helmingur 20 ára nemenda sótti skóla og hefur hlutfallið ekki verið lægra síðan árið 2000. Hagstofan telur hugsanlega skýringu þá að stytting náms til stúdentsprófs hafi leitt til þess að fleiri tvítugir nemendur hafi lokið stúdentsprófi við 19 ára aldur.

Þegar skólasókn 16 ára var skoðuð eftir bakgrunni nemenda reyndist hún vera minnst meðal innflytjenda en 81,6% þeirra sóttu skóla haustið 2014 og 55,0% voru í skóla við 18 ára aldur. Skólasókn innflytjenda við 18 ára aldur hefur fallið síðustu tvö ár.

Hagstofan segir ástæðuna kunna að að vera að þessir nemendur hafi þegar lokið námi á framhaldsskólastigi, því mun hærra hlutfall 17 ára innflytjenda er enn í skóla. Annar möguleiki sé að þessir 18 ára nemendur séu hættir námi, a.m.k. tímabundið. Til innflytjenda teljast einstaklingar sem eru fæddir erlendis og eiga báða foreldra af erlendum uppruna. Skiptinemar, sem koma til ársdvalar á Íslandi, teljast með innflytjendum í þessum tölum. 

Frétt um skólasókn á vef Hagstofunnar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert