Hestar á Reykjanesbraut

Fjórir hestar sluppu og skelltu sér í útiskokk á Reykjanesbrautinni í morgun. Á myndbandinu hér að ofan má sjá hestana í góðum gír, en mbl.is fékk það sent frá vegfaranda í morgun.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu gengu þeir lausir í kringum Öldugötu í Hafnarfirði og Hafnarfjarðarkirkjugarð. 

Sluppu hestarnir að öllum líkindum úr hesthúsum við Kaldárselsveg í nágrenninu. Lögreglan taldi að búið væri að hafa uppi á dýrunum, sem hefðu verið að skoða blómin í görðum nágrannanna.

Ekki náðist í umsjónarmenn hesthúsanna við vinnslu fréttarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert