Icelandair bætir við sig öðru flugi

Stemmningin var gríðarleg á leikvanginum í Nice í gærkvöldi.
Stemmningin var gríðarleg á leikvanginum í Nice í gærkvöldi. AFP

Icelandair hefur bætt við aukaflugi til Parísar vegna leiks Íslands við Frakkland á EM í knattspyrnu. Fyrr í dag bætti Icelandair við tveimur flugum til Parísar og seldust þau sæti upp á skömmum tíma að sögn Icelandair. 

Flugið sem Icelandair bætir nú við sig er leiguflug sem samstarfsaðili Icelandair, Hifly, annast. Verða laus sæti í fluginu til sölu á vef Icelandair og er salan hafin. Flugið fram og til baka kostar 116.000 kr. með sköttum og gjöldum. Er um að ræða kostnaðarverð við að útvega aukaflug með skömmum fyrirvara, að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Icelandair.

Er brottför flugsins frá Keflavíkurflugvelli klukkan 08:00 að morgni leikdags, sunnudagsins 3. júlí, og brottför frá París á mánudagskvöldið klukkan 19:40 og lent á Keflavíkurflugvelli klukkan 21:00.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert