Íslendingar fá forgang í miðasölunni

Íslenskir stuðningsmenn verða í forgangi í miðasölunni.
Íslenskir stuðningsmenn verða í forgangi í miðasölunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stuðningsmenn Íslands fá forgang þegar kemur að miðakaupum á leikinn gegn Frökkum í fjórðungsúrslitum Evrópumótsins, sem fram fer á sunnudag. Frá þessu greinir KSÍ á Twitter-reikningi sínum.

Á Facebook-síðu samtakanna segir að þetta gildi fyrir þá stuðningsmenn, sem þegar hafi keypt miða á aðra leiki Íslands í keppninni og séu því með aðgang á miðasölusíðu UEFA. 

Miðasalan hefst klukkan 12:00 í dag, en röðin í hana opnar 11:45.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert