Meirihluti vill kjarasamninga

Frá mótmælum BHM í fyrra.
Frá mótmælum BHM í fyrra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kjarakönnun BHM leiðir í ljós að 58% svarenda vilja að samið sé um laun þeirra í kjarasamningum stéttarfélaga og vinnuveitenda þó að 48% telji að þau fengju hærri laun með að semja beint sjálf. Rúmum þriðjungi hugnast þvert á móti betur að semja sjálfur um sín kjör.

Í könnuninni var einnig spurt um afstöðu til þess að lífeyrisréttindi landsmanna verði jöfnuð. Um 42% svarenda sögðust frekar eða mjög hlynnt slíkri breytingu en 23% voru á móti. Þá leist um 29% svarenda fremur eða mjög vel á að hækka eftirlaunaaldur í 70 ár í áföngum en um 44% leist illa á slíka breytingu. 

Enn fremur voru þátttakendur spurðir álits á því hvað BHM ætti að leggja mesta áherslu á. Gefnir voru upp nokkrir svarmöguleikar og voru þátttakendur beðnir um að velja þrjá þeirra og raða í mikilvægisröð. Í heildarmati hlaut svarmöguleikinn „Hækkun launa og kaupmáttar“ flest stig, „Stytting  vinnuviku“ næstflest stig og „Lífeyrisréttindi“ lenti í þriðja sæti.

Könnunin var gerð af fyrirtækinu Maskínu í mars og apríl sl. og náði til félagsmanna BHM sem voru í starfi 1. nóvember 2015, rúmlega 12.000 manns. Svarendur voru um 4.800 og var svarhlutfallið því um 40%.

BHM
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert