Bjóða upp á beint flug til Parísar

Íslendingar fagna sigri á Austurríki á Stade de France í …
Íslendingar fagna sigri á Austurríki á Stade de France í París. Margir reyna nú að koma sér þangað fyrir sunnudag, í von um frekari fagnaðarlæti. Skapti Hallgrímsson

Eskimo travel hefur leigt flugvél til að ferja Íslendinga til Parísar fyrir leikinn gegn Frökkum á sunnudag. Flogið verður út snemma á sunnudagsmorgni og heim aftur síðdegis á mánudag.

Daníel Kristjánsson, verkefnastjóri Eskimo travel, segir fyrirtækið hafa leigt til fararinnar vél sem taki 133 farþega. Vilji fyrirtækið hjálpa til við að koma sem flestum Íslendingum út á því verði sem leiguflugfélagið býður. „Það er skemmtilegra að fleiri komist og við viljum bara sjá sem flesta Íslendinga úti.“

Ferðin er komin í sölu og má nálgast frekari upplýsingar á vefsíðu Eskimo travel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert