Innkalla heimilisskinku

Vegna mistaka við merkingu kemur ekki fram að varan inniheldur …
Vegna mistaka við merkingu kemur ekki fram að varan inniheldur vatnsrofin sojaprótein sem er á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda.

Norðlenska matborðið ehf. hefur ákveðið að taka úr sölu og innkalla frá neytendum Bautabúrið heimilisskinku. Vegna mistaka við merkingu kemur ekki fram að varan inniheldur vatnsrofið sojaprótein sem er á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda.

Vörumerki: Bautabúrið

Vöruheiti: Heimilisskinka

Umbúðir: Plastbox

Best fyrir dagsetningar frá bbd. 29.6.2016 til og með 24.07.2016.

Framleiðandinn: Norðlenska matborðið, Grímseyjargötu, 602 Akureyri

„Innköllunin hefur farið fram en neytendur eiga umrædda vöru og eru með ofnæmi eða óþol fyrir sojapróteinum eiga að farga henni eða skila í þá verslun sem hún var keypt,“ segir í frétt frá Matvælastofnun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert