Undirrituðu yfirlýsingu um varnarsamstarf

Loftrýmisgæsla í lofthelgi Íslands. Myndin er úr safni.
Loftrýmisgæsla í lofthelgi Íslands. Myndin er úr safni. mbl.is/Þórður

Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra og Robert O. Work, varavarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, undirrituðu í dag sameiginlega yfirlýsingu um samstarf á sviði varnarmála. Yfirlýsingin er viðbót við samkomulag sem undirritað var við bandarísk stjórnvöld haustið 2006 og rúmast innan tvíhliða varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna frá árinu 1951.

Yfirlýsingin kveður meðal annars á um áframhaldandi stuðning Bandaríkjanna við loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins hér á landi og tímabundna viðveru kafbátarleitarvéla, náið samráð um öryggis- og varnarmál, viðhald og rekstur varnarmannvirkja, upplýsingaskipti og hagnýtt samstarf, meðal annars á sviði æfinga, leitar og björgunar og neyðaraðstoðar, að því er fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Lilja segir að umhverfi öryggismála í Evrópu og norðanverðu Atlantshafi hafi breyst á undanliðnum tíu árum og íslensk og bandarísk stjórnvöld séu sammála um að tilefni sé til að endurspegla það í yfirlýsingu sem þessari.

Umsvif Bandaríkjahers á norðanverðu Atlantshafi hafa aukist á síðustu árum sem kunnugt er. Þannig hefur Bandaríkjaher, frá árinu 2008, annast loftrýmisgæslu á Íslandi á vegum Atlantshafsbandalagsins einu sinni á ári og undanfarin tvö ár hafa bandarískar kafbátaleitarvélar haft tímabundna viðveru hér á landi.

„Það er einkum hin tímabundna viðvera Bandaríkjahers hér á landi, sem hefur verið að þróast undanfarin ár og er stigsbreyting á okkar samstarfi, sem við viljum formfesta með þessum hætti, enda er gegnsæi afar mikilvægt í samskiptum ríkjanna. Um leið gefst hér gott tækifæri til að árétta gagnkvæmar varnarskuldbindingar og áframhaldandi samráð og samvinnu í farsælu varnarsamstarfi sem hefur farið vaxandi á síðustu árum", segir Lilja.

Undirritunin fór fram í Reykjavík og Washington.

Yfirlýsingin í heild sinni

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert