Vörukarfan hækkað í átta verslunum

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. mbl.is/Guðmundur Rúnar

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað í átta verslunum frá því í febrúar þar til nú um miðjan júní. Í þremur verslunum hefur vörukarfan lækkað, mest um 1,5% hjá Krónunni og um 1,4% hjá Bónus. Á sama tímabili hefur matur og drykkur hækkað um 0,4% í vísitölu neysluverðs.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Alþýðusambandi Íslands.

Mesta hækkunin á vörukörfunni var hjá Iceland, eða 3,2%, 2,8% hjá Hagkaupum, um 2,5% hjá 10/11 og um 1,5% hjá Nettó en minna hjá Samkaupum-Úrval, Samkaupum-Strax, Víði og Kjarval eða undir 0,6%.

Mesta lækkunin er 1,5% hjá Krónunni og um 1,4% hjá Bónus en minni lækkun er hjá Kaupfélagi Vestur Húnvetninga eða 0,3%.

Töluverðar verðbreytingar eru í öllum vöruflokkum hjá öllum verslununum. Sem dæmi um hækkanir hefur vöruflokkurinn sætindi hækkað hjá níu verslunum af ellefu, mest um 10% hjá Iceland, um 9% hjá 10/11, um 5,8% hjá Víði, um 4,4% hjá Kaupfélagi Vestur Húnvetninga, um 4% hjá Nettó, um 3% hjá Hagkaupum, um 2,5% hjá Samkaupum-Strax, um 1,7% hjá Kjarval  og um 0,5% hjá Samkaupum-Úrval en lækkað í verði hjá Bónus um 0,6% og um 0,8% hjá Krónunni.

Grænmeti og ávextir hafa lækkað í verði hjá sex verslunum af ellefu, mest um 13,6% hjá Bónus, um 10,5% hjá Krónunni, um 6,5% hjá Víði og um 6,3% hjá Kaupfélagi Vestur Húnvetninga en minna hjá Iceland og Samkaupum-Strax. Mest hækkaði vöruflokkurinn um 6,7% hjá 10/11 og um 4,1% hjá Kjarval en minna hjá Nettó, Hagkaupum, og Samkaupum-Úrval.

Vöruflokkurinn kjötvörur hefur hækkað í verði hjá sjö verslunum af ellefu, mest um 9,4% hjá Víði, 4,2% hjá Bónus, 4,1% hjá Iceland og Hagkaupum en minna hjá Nettó, Samkaupum-Úrval og 10/11. Hjá Krónunni, Samkaupum-Strax, Kjarval og Kaupfélagi Vestur Húnvetninga er vöruflokkurinn að lækka örlítið í verði.

Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðal heimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar matar- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, safa, auk hreinlætis- og snyrtivara. Við samsetningu hennar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðal heimilis.

Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar  milli verðmælinga. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræða, þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert