Nýkjörinn forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson heimsótti í dag Sigurð Inga Jóhannsson forsætisráðherra í forsætisráðuneytið. Sigurður Ingi greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni í dag.
Sigurður Ingi segir þá hafa átt stutt og gott spjall áður en forsætisráðherrann hélt norður á landsmót hestamanna á Hólum í Hjaltadal.
Þeir Sigurður og Guðni munu svo hittast aftur í París á sunnudaginn, eftir því sem Sigurður Ingi segir frá, en þar munu þeir báðir hvetja íslenska landsliðið til dáða gegn liði Frakka á Stade de France.
„Strákarnir okkar hafa svo sannarlega sýnt það á mótinu að engin hindrun er svo stór að ekki sé hægt að yfirstíga hana,“ skrifar Sigurður Ingi.