Hið mikla franska vikurit Elle lætur velgengni íslenska fótboltaliðsins á EM til sín taka. Hefur það valið Birki Bjarnason sem mann vikunnar.
„Ísland er liðið sem komið hefur svo á óvart á EM og leikur gegn Frakklandi í fjórðungsúrslitum á sunnudagskvöld. Í tilefni þess beinum við kastljósinu að leikmanni með óframberanlegt nafnt en sem kveikir næstum löngun til að læra tungumálið.
Birkir Bjarnason heitir hann og er 28 ára gamall holdgervingur víkinganna - hann hóf einmitt feril sinn í félaginu Víkingur - sem heillað hefur evrópska aðdáendur sem þrá einungis eitt; hárið hans. Langt og ljóst og haldið saman með þunnu hárbandi gefur það fótboltamanninum kraftmikla áru. Við vonum bara að lokkarnir logandi slái okkar Bláu útaf laginu,“ skrifar Elodie Petit í frétt kvenna- og tískublaðsins Elle. agas@mbl.is