Hlutfallslega fleiri grunnskólabörnum úr Mið- og Vesturbænum er ekið í skólann heldur en börnum úr öðrum bæjarhlutum, um 27%.
Breiðholtið rekur lestina þar sem aðeins um 13% barna er ekið í skólann. Gallup gerði könnun á ferðavenjum íbúa Reykjavíkur að beiðni borgarinnar.
Könnunin var kynnt á fundi Umhverfis- og skipulagsráðs fyrr í vikunni og samkvæmt heimildum Morgunblaðsins vakti tölfræðin um ferðavenjur grunnskólabarna eftir búsetu athygli fundarmanna.