Hæstiréttur staðfestir farbann

Húsið þar sem maðurinn er sagður hafa haldið konunum í …
Húsið þar sem maðurinn er sagður hafa haldið konunum í kjallara.

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms Suðurlands um farbann sem lagt var á mann sem grunaður er um mansal í Vík í Mýrdal. Héraðsdómur ákvað hinn 22. júní sl. að banna för mannsins frá Íslandi til miðvikudags 20. júlí kl. 16.

Maðurinn var handtekinn um miðjan febrúar sl. en við húsleit á heimili hans kom í ljós að þar voru staddar tvær erlendar konur sem sögðust hafa búið og unnið við að prjóna á heimilinu frá 17. janúar en engin laun fengið fyrir vinnu sína.

Maðurinn er grunaður um að hafa haldið fólki í vinnuþrælkun en hann er eigandi fyrirtækisins Vonta International.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert