Hótuðu tveggja barna móður með hnífi

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Börn húsráðanda í íbúð í Kópavogi náðu að læsa sig inni í herbergi og hafa samband við móður sína þegar tvær konur ruddust inn í íbúðina í gærkvöldi. Konurnar tvær hótuðu móðurinni með hnífi þegar hún kom á vettvang. Þær voru handteknar skömmu síðar.

Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að tilkynnt hafi verið um húsbrotið klukkan 19:54. Konurnar sem réðust inn á heimilið voru handteknar þegar þær voru komnar heim til sín. Þær eru grunaðar um húsbrot, eignaspjöll og hótanir meðal annars. Þær voru vistaðar í fangageymslu í nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert