Ísland tekur við formennsku í EFTA

Ísland tók í dag við formennsku í EFTA og tveimur lykilstofnunum EES-samstarfsins í Brussel og mun stýra þeim til ársloka. Í EFTA mun Ísland leggja höfuðáherslu á samband aðildarríkjanna við Bretland en EFTA-ríkin munu eiga náið samráð til að viðhalda efnahags- og viðskiptatengslum við Breta.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Þar segir m.a. að stefnt sé að því að ljúka fríverslunarviðræðum við Indverja og setja jafnréttisstefnu fyrir EFTA.

„Í Brussel tekur Ísland við formennsku í fastanefnd EFTA en meginhlutverk nefndarinnar er að samræma afstöðu EFTA-ríkjanna innan EES gagnvart Evrópusambandinu fyrir fundi í sameiginlegu EES-nefndinni, sem Ísland mun einnig stýra. Lögð verður m.a. áhersla á að fylgjast náið með viðræðum um fyrirhugaða útgöngu Breta úr ESB með það að markmiði að tryggja viðskiptahagsmuni EES EFTA ríkjanna.

Einnig verður, í samræmi við Evrópustefnu ríkisstjórnarinnar, lögð áhersla á að fylgjast vel með málum sem eru í lagasetningarferli hjá ESB og eru metin sem forgangsmál út frá íslenskum hagsmunum.  Þá verður, eins og ávallt í EES-samstarfinu, áfram unnið að því að lausn náist um einstakar útistandandir gerðir sem varða EES-samninginn en hafa ekki enn verið teknar upp í samninginn, þ.e. að minnka s.k. upptökuhalla,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert