Krafðist þrautseigju áhafnarinnar

Áhöfnin komst að endurvarpanum til að bæta við eldsneyti og …
Áhöfnin komst að endurvarpanum til að bæta við eldsneyti og gangsetja ljósavél sem er notuð til að hlaða rafgeymana fyrir endurvarpann. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Áhöfnin á TF-GNÁ, þyrlu Landhelgisgæslunnar fór í gær í verkefni á Straumnesfjalli norðan við Aðalvík. Slokknað hafði á endurvarpa sjálfvirka auðkenniskerfisins (AIS) sem er á fjallinu en hann er mjög mikilvægur fyrir öryggi sjófarenda á svæðinu.

Varðskipið Þór var á svæðinu til að tryggja öryggi sjófarenda og miðla upplýsingum til stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar. Varðskipið er útbúið sendi- og móttökutækjum sem gera varðskipinu kleyft að taka á móti upplýsingum frá skipum og bátum á takmörkuðu svæði í gegnum sjálfvirka auðkenniskerfið.

Skýjaslæðingur og svartaþoka var efst á fjallinu og skyggni mjög lítið sem krafðist útsjónarsemi og þrautseigju áhafnarinnar til að komast að endurvarpanum við þessar aðstæður, segir í frétt frá Gæslunni um málið. Áhöfnin komst að endurvarpanum til að bæta við eldsneyti og gangsetja ljósavél sem er notuð til að hlaða rafgeymana fyrir endurvarpann. Að lokum komst endurvarpinn aftur í gang og áhöfnin hélt heim á leið. Meðfylgjandi myndir voru teknar af áhöfn þyrlunnar og sýna þær hversu slæmt skyggni var á svæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert