Kveikti í íbúð í Hafnarfirði

mbl.is/Eggert

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um að kona hefði kveikt í íbúð í Hafnarfirði síðdegis í gær. Konan er grunuð um framleiðslu eða vörslu fíkniefna. Einhverjar skemmdir urðu á íbúðinni. Þá er karlmanns leitað vegna ótengdrar líkamsárásar, einnig í Hafnarfirði. 

Í dagbók lögreglunnar kemur fram að tilkynnt hafi verið um tvo menn í annarlegu ástandi sem réðust inn á heimili í bænum í gærkvöldi. Þeir eru grunaðir um líkamsárás og eignaspjöll. Annar maðurinn var enn á vettvangi þegar lögreglumenn bar að garði. Hann var handtekinn og vistaður í fangageymslu.

Vitað er hver hinn maðurinn er og er hans nú leitað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert