Mál karlmanns á miðjum aldri sem fannst meðvitundarlaus fyrir utan heimili sitt í Brekkuhverfinu í Kópavogi um tíuleytið síðastliðið laugardagskvöld er enn óupplýst. Maðurinn var með mikla áverka þegar hann fannst en ekki liggur fyrir hver veitti honum þá.
Maðurinn var fluttur á Landspítalann þar sem hlúð var að honum.
Engin vitni hafa gefið sig fram og hefur maðurinn ekki getað greint frá atvikum. Þá hefur lögregla ekki vísbendingar um málið, sem er áfram til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Fréttir mbl.is:
Maðurinn lá fyrir utan heimili sitt