Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum af umferðaróhappi sem átti sér stað við gatnamót Háaleitisbrautar og Lágmúla þann 26. maí sl. um klukkan 9.30.
Óhappið varð með þeim hætti að rauðum jeppling var ekið á gangandi vegfaranda sem var að teyma reiðhjól yfir Háaleitisbraut.
Sá sem ekið var á talaði við mann sem kom honum til hjálpar og var sá maður á svörtum jeppa.
Þeir sem urðu vitni af óhappinu eða búa yfir upplýsingum um það eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000, með því að senda tölvupóst á gudmundur.pall@lrh.is eða senda ábendingar í gegnum einkaskilaboð á Facebook-síðu lögreglunnar.