Ragnar Jónasson, rithöfundur og lögfræðingur, er efstur á lista yfir listamenn í tekjublaði Frjálsrar verslunar með 2,636 milljónir króna í tekjur á mánuði á síðasta ári.
Á eftir honum kemur Brynjar Leifsson tónlistarmaður með 1,771 milljónir króna á mánuði. Í þriðja sæti er Ragnar Þórhallsson tónlistarmaður með 1,737 milljónir á mánuði.
Baltasar Kormákur Baltasarsson, leikstjóri, var með 1,731 milljónir á mánuði í tekjur á síðasta ári. Á eftir honum kemur Nanna Bryndís Hilmarsdóttir tónlistarkona með 1,712 milljónir.
Þess ber að geta að Brynjar, Ragnar og Nanna eru öll í hljómsveitinni Of Monsters and Men.
Leikarinn Ólafur Darri Ólafsson er í níunda sæti yfir listamenn með 1,260 milljónir á mánuði. Hilmir Snær Guðnason er í fimmtánda sæti með 1,037 milljónir.
Salka Eyfeld Hjálmarsdóttir, betur þekkt sem Salka sól, var með 687 þúsund krónur á mánuði á síðasta ári. Á eftir henni á listanum er Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur og verðandi forseti, 657 þúsund krónur á mánuði. Hann er kennari í sagnfræði við Háskóla Íslands.
Arnaldur Indriðason rithöfundur var með 648 þúsund krónur á mánuði á síðasta ári, Ágústa Eva Erlendsdóttir leikkona var með 563 þúsund krónur, Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður var með 562 þúsund krónur á mánuði.
Neðstur á listanum er Barði Jóhannsson tónlistarmaður með 311 þúsund krónur.
Í blaðinu er birtur listi yfir tekjur rúmlega 3.725 Íslendinga. Könnunin byggist á álögðu útsvari eins og það birtist í álagningarskrám. Frjáls verslun áréttar að í einhverjum tilvikum kann að vera að skattstjóri hafi áætlað tekjur.
Í tekjublaði Frjálsrar verslunar er tekið fram að um útvarsskyldar tekjur á árinu 2015 sé að ræða og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. „Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Jafnframt hafa margir tekið út séreignarsparnað en hann telst með í útsvarsskyldum tekjum.“