Vara við hættulegum megrunarvörum

La'Trim Plus, Oasis og Jenesis eru ólögleg og hættuleg fæðubótarefni.
La'Trim Plus, Oasis og Jenesis eru ólögleg og hættuleg fæðubótarefni. Ljósmynd/FDA

Matvælastofnun (MAST) hafa borist upplýsingar frá bandarísku Matvæla- og lyfjastofnuninni (FDA) um hættuleg og ólögleg fæðubótarefni sem fundist hafa í vörum sem ætlaðar eru til megrunar. Vörurnar heita La'Trim Plus, Oasis, og Jenesis og hafa þær reynst innihalda efnin sibutramine og phenolphthalein en efnanna er ekki getið á innihaldslýsingum. FDA hefur áður sent frá sér sambærilegar tilkynningar þar sem varað var við hættulegu fæðubótarefni þar sem efna er ekki getið á umbúðum.

Sibutramine er lyf sem var afturkallað af markaði í Evrópu, Bandaríkjunum og víðar árið 2010 vegna alvarlegra aukaverkana, einkum tengdum hjarta og æðakerfi. Phenolphthalein er lyf sem var áður notað sem hægðalosandi en notkun hefur verið hætt vegna vísbendinga um að það valdi krabbameini. „Lyfjaefni sem þessi ætti aldrei að nota nema í samráði við lækni, í formi lyfja sem hafa markaðsleyfi, þar sem þau geta verið skaðleg heilsu séu þau ekki notuð á réttan hátt. Fæðubótarefni sem inniheldur þessi lyfjaefni teljast hættuleg matvæli, sérstaklega þegar efnanna er ekki getið á umbúðum varanna,“ segir í frétt frá Matvælastofnun. 

Samkvæmt 11. gr. matvælalaga er innflutningur og dreifing matvæla þ.m.t. fæðubótarefna sem innihalda lyf eða lyfjavirk efni, óheimil.  Auk þess er skv. 8. gr. matvælalaga óheimilt að markaðssetja matvæli sem eru ekki örugg til neyslu, þ.e. heilsuspillandi. Umræddar vörur eru því ólöglegar til innflutnings og markaðssetningar.

Ekki upplýsingar um að vörurnar séu seldar hér

Fæðubótarefni eru matvæli sem almennt eru í frjálsu flæði til landsins og því fyrst og fremst undir markaðseftirliti, samkvæmt upplýsingum frá Matvælastofnun. Eftirlit með fæðubótarefnum á markaði er í höndum heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. Innflutningseftirlit er í höndum MAST. Samkvæmt reglugerð um fæðubótarefni er innlendum framleiðanda/innflytjanda skylt að tilkynna innflutning/markaðssetningu nýrra fæðubótarefni til MAST. Viðkomandi vörur hafa ekki verið tilkynntar til Matvælastofnunnar og hefur stofnunin því ekki upplýsingar um að vörurnar séu á almennum markaði hér á landi.

Hinsvegar er ekki hægt að útiloka að vörurnar hafi komið til landsins í einkasendingum í gegnum vefverslanir. Netverslun hefur aukist til muna og er því mikilvægt að fylgjast vel með innflutningi með fæðubótarefnum.

Matvælastofnun hvetur fólk til að kaupa ekki vörurnar eða neyta þeirra þar sem þær geta verið hættulegar heilsu. Stofnunin beinir því til neytenda að hafa samband við viðkomandi heilbrigðiseftirlit hafi þeir upplýsingar um vörurnar á innlendum markaði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert