Auðvelt að mála fjandann á vegginn

Guðni Th. Jóhannesson, nýkjörinn forseti Íslands.
Guðni Th. Jóhannesson, nýkjörinn forseti Íslands. mbl.is/Eggert

„Mér finnst stundum hræðslan verða skynseminni yfirsterkari. Það er svo auðvelt að mála fjandann á vegginn,“ sagði Guðni Th. Jóhannesson, nýkosinn forseti Íslands, í þættinum Vikulokunum á Rás 1 í hádeginu í dag, spurður um innflytjendamál.

Íslendingar geti og eigi að leggja sitt af mörkum vegna flóttamannavandans í heiminum. Ekkert sé að óttast ef við erum skynsöm og sýnum mannúð.

Guðni var gestur Helga Seljan í þættinum sem hlusta má á hér.

„Vissulega glímir Evrópa við mörg vandamál tengd því að fólk er að flýja hörmungar og stríð fyrir botni Miðjarðarhafs og fátækt og hörmungar í Afríku og leitar að betra lífi. Við getum lagt okkar af mörkum. Við getum ekki bjargað heiminum, en við getum lært af þeim vanda sem hefur skapast víða í Evrópu vegna þess að flóttamenn ná ekki að aðlagast samfélaginu í kringum þá og reynt þá að gera betur,“ sagði hann.

Hann sagðist telja að við hefðum allar forsendur til þess að búa fólki hér nýtt líf án þess að samfélag okkar skaðaðist á nokkurn hátt. „Við höfum tekið á móti fólki, við verðum að halda því áfram, og höfum góða reynslu af öllu því ágæta fólki sem hér hefur sest að. Hér eru ekki sömu vandamál og sums staðar annars staðar og þurfa ekki að kvikna.“

Hann sagðist sjálfur eiga konu frá Kanada, sem væri land innflytjenda. „Þar hefur að mestu leyti tekist vel að búa til samfélag þar sem innflytjendur eru velkomnir, þar sem ólíkir hópar búa saman í sátt og samlyndi, fólk sem tilbiður ólíka guði, fólk sem kemur hvaðanæva úr heiminum. Þetta hefur gefist ágætlega þar og gæti verið okkur fyrirmynd að vissu leyti.

Við hér á Íslandi eigum að hlakka til og gleðjast yfir þeim sem hingað vilja koma og bæta okkar samfélag. En við getum ekki tekið á móti öllum sem hingað vilja koma. Það vita held ég allir, líka þeir sem vilja sýna mannúð eins og ég.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert