Hundruð hylltu strákana á Reykjanesbraut

Mynd/Víkufréttir

Mikill mannfjöldi safnaðist saman við Reykjanesbrautina og veginn að Keflavíkurflugvelli og hyllti landsliðið þegar því var ekið til Reykjavíkur nú um sjö í dag. Hilmar Bragi Bárðarson, fréttastjóri á Víkurfréttum, segir að fjöldinn hafi skipt hundruðum.

Á myndunum má sjá fólk sem beið við Innri-Njarðvík, en Hilmar segir að auk þess hafi mikill fjöldi verið nær flugvellinum og langleiðina að flugvellinum.

Mynd/Víkufréttir
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert