Sakborningar opna vef um Al Thani-málið

Sig­urður Ein­ars­son, Hreiðar Már Sigurðsson, Magnús Guðmunds­son og Ólaf­ur Ólafs­son.
Sig­urður Ein­ars­son, Hreiðar Már Sigurðsson, Magnús Guðmunds­son og Ólaf­ur Ólafs­son. mbl.is/Kristinn

Sakborningarnir í Al Thani-málinu svonefnda hafa í hyggju að opna nýjan vef þar sem finna má gögn sem tekin hafa verið saman um málið. Vefurinn mun bera heitið dagsljos.is. Freyr Einarsson, fyrrverandi fréttastjóri hjá 365, mun halda utan um vefinn.

Kjarninn greindi frá málinu í dag.

Sakborningarnir voru sak­felld­ir fyr­ir umboðssvik og markaðsmis­notk­un af Hæsta­rétti í fe­brú­ar í fyrra. Hreiðar Már Sig­urðsson, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaupþings, var dæmd­ur í fimm og hálfs árs fang­elsi, Sig­urður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­formaður bank­ans, í fjög­urra ára fang­elsi, Ólafur Ólafsson, sem var einn stærsti hlut­hafi bank­ans, í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi og Magnús Guðmunds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaupþings í Lúx­em­borg, sömu­leiðis í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi.

Þeir kærðu málið til Mannréttindadómstóls Evrópu sem hefur nú krafið íslensk stjórnvöld svara við fjórum efnislegum spurningum um málsmeðferð þess. Stjórnvöld fá frest til 10. október til þess að skýra mál sitt. Að því loknu tek­ur dóm­stóll­inn af­stöðu til þess hvort málið verði tekið til efn­is­legr­ar meðferðar og réttað í því.

Frá aðalmeðferð Al Thani-málsins í héraði.
Frá aðalmeðferð Al Thani-málsins í héraði. mbl.is/Eggert

Fréttir misréttar og margar rangar

Freyr segir í samtali við mbl.is að vefurinn verði nokkurs konar gagnagrunnur úr Al Thani-málinu, þannig að fólk geti kynnt sér málið og öll gögn sem tengjast því til hlítar. „Við teljum og höfum komist að því að fréttir sem hafa borist af málinu í gegnum tíðina hafa verið misréttar og margar rangar,“ segir hann.

Gagnaöflun fyrir vefinn standi nú yfir og komi að miklu leyti til í kjölfar þess að Mannréttindadómstóll Evrópu tók málið til skoðunar. Hann segist jafnframt vonast til þess að öll gögn málsins komi fyrr en síðar fram í dagsljósið. Ljóst sé að sakborningarnir hafi ekki fengið að sjá öll gögn sem liggja fyrir í málinu.

Freyr segir ekki hafa verið ákveðið hvenær vefurinn verði opnaður, en það verði væntanlega gert með haustinu.

Þá hefur Facebook-síðan Dagsljós jafnframt verið stofnuð, en þar eru fréttir sem tengjast Al Thani-málinu endurbirtar. Þar segir enn fremur: „Dagsljós er samstarfsverkefni áhugamanna um réttlæti í svokölluðu Al Thani-máli sem nú er til rannsóknar hjá Mannréttindadómstóli Evrópu.“

Kaupþing.
Kaupþing. mbl.is/Ómar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert