Viljayfirlýsing um 150 leiguíbúðir

Frá vinstri: Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri fjölskylduþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, Haraldur L. Haraldsson …
Frá vinstri: Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri fjölskylduþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri og Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ. Ljósmynd/Hafnarfjarðarbær

Hafnarfjarðarbær og Alþýðusamband Íslands hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu 150 leiguíbúða í Hafnarfirði. Verkefnið verður unnið á grundvelli laga um almennar leiguíbúðir sem samþykkt voru á Alþingi 2. júní síðastliðinn.

Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, og Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um byggingu 150 leiguíbúða í Hafnarfirði á næstu fjórum árum, að því er segir í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ.

Unnið verður að uppbyggingunni í samræmi við samþykktir ASÍ og áherslur Hafnarfjarðarbæjar í húsnæðismálum. 

Í tilkynningunni segir jafnframt að ASÍ vinni þessa dagana að stofnun og fjármögnun húsnæðissjálfseignarstofnunar sem kemur til með að starfa á landsvísu.

Hafnarfjarðarbær hefur þegar gefið félaginu, sem mun starfa í umboði ASÍ, vilyrði fyrir úthlutun á lóðum fyrir uppbyggingu 150 almennra leiguíbúða. Markmiðið er að afhenda lóðir fyrir 32 íbúðir á yfirstandandi ári, 28 íbúðir árið 2017, 45 íbúðir árið 2018 og 45 íbúðir árið 2019.

Ráðgert er að úthlutun 2016 nái til Hraunskarðs 2-4-6-8 og Hádegisskarðs 4-6. Gert er ráð fyrir þeim möguleika að hluti íbúðanna muni rísa sem hluti af verkefnum við þéttingu byggðar í Hafnarfirði.

Fjölskylduþjónusta Hafnarfjarðarbæjar mun hafa ráðstöfunarrétt yfir 25% íbúða sem byggðar verða samkvæmt viljayfirlýsingunni. Sameiginleg verkefnisstjórn skipuð aðilum frá Hafnarfjarðarbæ og ASÍ mun vinna að framgangi verkefnisins næstu vikur og mánuði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert