Norður-Kórea óskar Guðna til hamingju

Guðni er eflaust ánægður með hamingjuóskirnar úr austri.
Guðni er eflaust ánægður með hamingjuóskirnar úr austri. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kim Yong Nam, forseti norðurkóreska þingsins, hefur sent Guðna Th. Jóhannessyni, verðandi forseta Íslands, hamingjuóskir með kjörið. Ríkisfréttastofa Norður-Kóreu greinir frá þessu.

Óskaði þingforsetinn Guðna velgengni í starfi og sagðist vonast til þess að samskipti ríkjanna myndu styrkjast.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert