Hið alvarlega umferðarslys á Reykjanesbraut í morgun varð þegar stór flutningabíll og mótorhjól rákust saman, samkvæmt heimildum mbl.is.
Samkvæmt sömu heimildum var flutningabíllinn að beygja frá afleggjaranum við Ásbrú þegar hann ók í veg fyrir mótorhjólið.
Ekki er vitað um líðan ökumannsins og vill lögreglan á Suðurnesjum ekkert tjá sig um slysið að svo stöddu.
Frétt mbl.is: Alvarlegt slys á Reykjanesbraut
Uppfært10:50
Reykjanesbraut hefur verið opnuð fyrir umferð.