Einn alvarlega slasaður

Frá slysstað.
Frá slysstað. Ljósmynd/Aðsend

Tveir voru fluttir á slysadeild eftir umferðarslys á Reykjanesbraut á ellefta tímanum í dag. Þar af er annar alvarlega slasaður.

Dráttarbíll var að taka upp kyrrstæðan bíl við Breiðholtsbrúna á Reykjanesbraut þegar ekið var aftan á þá. Ökumenn bílanna voru einir í þeim og voru báðir fluttir á slysadeild. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var áreksturinn harður.

Flutningabílstjóri sem hafði samband við mbl.is í dag, segir lítinn fólksbíl hafa verið kyrrstæðan undir Breiðholtsbrúnni þegar hann átti þar leið um, um klukkan hálfellefu í morgun og hafi hann gert lögreglu viðvart.

Lögregla lokaði hluta Reykjanesbrautar vegna slyssins, en hefur vegurinn verið opnaður fyrir umferð á ný. 

Sjá frétt mbl.is: Umferðarslys við Mjódd

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert