Handtóku réttindalausan rútubílstjóra

Maðurinn ók með rússneska ferðamenn að Seljalandsfossi.
Maðurinn ók með rússneska ferðamenn að Seljalandsfossi. mbl.is/Rax

Síðdegis á laugardag hafði lögreglan á Suðurlandi afskipti af rútubílstjóra við Seljalandsfoss sem var með farþega á vegum rússneskrar ferðaskrifstofu. Bílstjórinn var rússneskur og hafði þann starfa að aka hópum á vegum ferðaskrifstofunnar um Ísland. Ekkert rekstrarleyfi var til staðar. Ökumaður var ekki með ökuritaskífu í ökurita rútunnar og hann var ekki með ökuréttindi til aksturs í atvinnuskyni á Íslandi. Ökumaðurinn var handtekinn og færður til yfirheyrslu á lögreglustöðinni á Selfossi. Að henni lokinni féllst hann á lögreglustjórasátt sem fólst í 65.000 króna sekt. Að því loknu var hann frjáls ferða sinna en annar bílstjóri sá um að aka rútunni með farþegunum til Reykjavíkur en þeir áttu að fara í flug síðar um kvöldið.

Í gær var svo ökumaður staðinn að því við Gullfoss að aka með erlenda ferðamenn í leigubíl í atvinnuskyni án réttinda og auk þess að hafa ekki fullgild ökuréttindi til aksturs leigubíls. Ökumaðurinn var færður á lögreglustöð til yfirheyrslu.

Svo virðist sem nokkuð vanti upp á að þeir sem stunda akstur með farþega hafi gild hópferða- og rekstrarleyfi eða að ökumenn séu með ökurita í lagi. Sex voru kærðir í vikunni fyrir brot af þessu tagi. Þess má geta að í þeim tilvikum sem kært er vegna ökurita eru ökumaður og umráðamaður kærðir og refsing umráðamanns þyngri en ökumanns.
Tékkneskir ferðamenn voru stöðvaðir á bifreið á þjóðveginum í Eldhrauni. Þeir sögðust hafa tekið bifreiðina á leigu í gegnum netið en voru ekki með leigusamning og bifreiðin var ekki skráð sem bílaleigubifreið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert