Biðst afsökunar á „klaufalegu orðalagi“

Ari Edwald, forstjóri MS.
Ari Edwald, forstjóri MS. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Ari Edwald, forstjóri Mjólkursamsölunnar, hefur beðist velvirðingar á „klaufalegu orðalagi“, þar sem hann gaf í skyn að neytendur myndu á endanum borga sektina sem Samkeppniseftirlitið lagði á MS.

„Neytendur munu ekki bera mögulega sektargreiðslu MS. Umræða um sekt er heldur ekki tímabær þar sem málinu er ekki lokið og fer nú til áfrýjunarnefndar samkeppnismála,“ segir Ari í tilkynningu sem hann sendi fjölmiðlum rétt í þessu.

Þar segir hann að hjá MS geri menn sér sterkar vonir um að endanleg niðurstaða muni ekki fela í sér viðurlög fyrir fyrirtækið.

Ari segir einnig að vegna þess að ákvarðanir um verð á helstu mjólkurvörum í heildsölu og lágmarksverð til bænda séu teknar af opinberri verðlagsnefnd, hafi MS enga hagsmuni eða getu til að misnota þá stöðu sem félagið sé í.

„Þvert á móti eru það hagsmunir MS og bænda að sem mest magn af mjólk sé unnið og selt á markaði og að vöruþróun fleiri fyrirtækja skili árangri,“ segir Ari.

Tilkynningin í heild:

Vegna umræðu um endurtekna ákvörðun Samkeppniseftirlitsins (SE) tengda Mjólkursamsölunni ehf. (MS) og meint brot fyrirtækisins á árunum 2008 til 2013, tel ég rétt að árétta nokkur atriði.

Fyrst af öllu vil ég biðja alla velvirðingar á klaufalegu orðalagi mínu, þar sem ég gaf í skyn að neytendur myndu á endanum borga þá sekt sem SE hefur ákveðið að MS skuli greiða. Neytendur munu ekki bera mögulega sektargreiðslu MS. Umræða um sekt er heldur ekki tímabær þar sem málinu er ekki lokið og fer nú til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. MS gerir sér sterkar vonir um að endanleg niðurstaða í þessu máli muni ekki fela í sér viðurlög fyrir MS. Stjórnendur MS hafa alltaf lagt ríka áherslu á að starfa í samræmi við lög og reglur. MS hefur enda aldrei sætt niðurstöðu um að hafa brotið samkeppnisreglur, hvorki af hálfu stjórnvalda né dómstóla.

Ákvarðanir um verð á helstu mjólkurvörum í heildsölu og lágmarksverð til bænda eru teknar af opinberri verðlagsnefnd. Þar á meðal eru verðákvarðanir á öllum hráefnum sem seld eru samkeppnisaðilum MS og öðrum matvælaframleiðendum. Við ákvarðanatöku styðst verðlagsnefnd meðal annars við kostnaðarþróun í rekstri kúabúa og afurðastöðva. MS hefur því ekki nokkra hagsmuni eða getu til að misnota þá stöðu sem félagið er í. Þvert á móti eru það hagsmunir MS og bænda að sem mest magn af mjólk sé unnið og selt á markaði og að vöruþróun fleiri fyrirtækja skili árangri.

Skýrsla Hagfræðistofnunar frá síðasta ári og fleiri rannsóknir staðfesta, að sú umgjörð sem mjólkurframleiðsla hefur búið við á undanförnum árum hefur leitt til mikillar hagræðingar í greininni. Sú hagræðing hefur síðan skilað sér til neytenda í lækkuðu vöruverði, sem nemur milljörðum króna árlega.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert