Engin leið að sætta sig við hækkanirnar

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB.
Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB. mbl.is/Ómar

BSRB mótmælir harðlega ákvörðun kjararáðs um að hækka laun nokkurra forstöðumanna ríkisstofnana og nefndarformanna um tugi prósenta. Ákvörðunin sé í engu samræmi við það samkomulag sem aðilar á vinnumarkaði, ríkið þar með talið, hafi náð um endurbætur á vinnumarkaðsmódelinu.

Kjararáð hækkaði nýverið laun ríkislögreglustjóra, landlæknis, formanns kærunefndar útlendingamála, skólastjóra Lögregluskóla ríkisins, forstjóra Útlendingastofnunar, fangelsismálastjóra og forstjóra Barnaverndarstofu um tugi prósenta.

Eru flestar hækkanirnar afturvirkar og ná allt til 1. desember 2014.

Frétt mbl.is: Forstöðumenn fá afturvirkar hækkanir

Álag líka aukist hjá fleirum

Í tilkynningu frá BSRB segir að með þessum ákvörðunum haldi kjararáð áfram að hækka laun hæst launuðu starfsmanna ríkisins um tugi prósenta umfram þær hækkanir sem annað launafólk hefur fengið og hafa verið í samræmi við SALEK-samkomulagið.

„Í flestum ákvörðunum kjararáðs, sem lesa má á heimasíðu ráðsins, er vísað til þess að álag í starfi þessara starfsmanna, sem eru meðal þeirra hæst launuðu sem starfa hjá ríkinu, hafi aukist verulega undanfarið. 

Það er engin ástæða til að efast um að álag í starfi þessara ríkisforstjóra og nefndarmanna hafi aukist á undanförnum árum. Það sama á auðvitað við um aðra stóra hópa á vinnumarkaði sem hafa upplifað gríðarlega mikið álag í starfi árum saman eftir niðurskurð og samdrátt. Þessum hópum hefur ekki staðið til boða að fá tuga prósenta launahækkanir,“ segir í tilkynningunni.

Verður ekki án afleiðinga

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, segir það ekki ganga að aðeins hluti launafólks eigi að taka þátt í því að byggja hér upp nýtt vinnumarkaðskerfi. Aðilar vinnumarkaðarins hafi gert með sér rammasamkomulag sem átti að koma í veg fyrir að einstakir hópar hækkuðu meira en aðrir, sem kallar alltaf á kröfu um leiðréttingar.

„Þessi hækkun ríkisforstjóra er langt umfram það samkomulag og því engin leið að hægt sé að sætta sig við hana. Þessi mikla hækkun hjá hópi sem hefur haft mjög góð laun eykur á ójöfnuð í samfélaginu og verður ekki án afleiðinga. Hún kallar augljóslega á að fleiri hópar fái leiðréttingu á launum vegna mikils álags. 

Kjararáð hefur sett ákveðið fordæmi með ákvörðunum um tuga prósenta hækkanir, fyrst fyrir ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra ráðuneyta, og nú fyrir forstjóra nokkurra ríkisstofnana. Til þess fordæmis hljótum við að leita þegar kemur að því að sækja sambærilegar hækkanir fyrir annað launafólk sem upplifað hefur aukið álag í starfi,“ segir hún.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert