Mótmæli ekki á réttum forsendum

Líkt og sjá má á þessari tölvugerðu mynd á þak …
Líkt og sjá má á þessari tölvugerðu mynd á þak viðbyggingar Hótels Reykjahlíðar að vera torfþak Tölvuteikning

Pétur Snæbjörnsson, hótelstjóri Hótels Reynihlíðar við Mývatn, segir dapurlegt að ýmsir heimamenn í Skútustaðahreppi geri sér ekki grein fyrir gífurlegri þýðingu frekari uppbyggingar ferðaþjónustunnar í Mývatnssveit.

„Mér finnst það mikið fagnaðarefni að fá svona sterkan aðila í ferðaþjónustunni, eins og Icelandair Group, til þess að setja sig niður hér í Mývatnssveit,“ sagði Pétur í samtali við Morgunblaðið í gær.

Pétur segist telja það mjög mikilvægt að Hótel Reykjahlíð sé fyrsta nútímahótelið í Mývatnssveit, reist 1947, og hótelinu og stofnendum þess, Reykjahlíðarsystrum, sé mikill sómi sýndur með því að gera hótelið upp og stækka á jafn smekklegan hátt og gert er ráð fyrir, samkvæmt þeim teikningum sem liggja fyrir, og gera hótelið þannig að besta og glæsilegasta hóteli Mývatnssveitar.

Glæsileg hótelbygging

„Við erum að tala um miklu glæsilegri hótelbyggingu en menn eiga að venjast, sem m.a. á að varðveita þessa merkilegu sögu móttöku gesta í Reykjahlíð,“ sagði Pétur.

Pétur segir að byggingin hafi verið hönnuð þannig að hún muni ekki trufla útsýni svo nokkru nemi. „Þó að útsýnið myndi skerðast eitthvað á 100 metra kafla, á 36 kílómetra hring umhverfis Mývatn, þá sé ég engan ofboðslegan voða í því,“ sagði Pétur.

Pétur var spurður hvort mótmælaundirskriftirnar í Mývatnssveit gætu haft áhrif á það hverjar yrðu endanlegar ákvarðanir: „Ég tel að þessi mótmæli hafi ekki verið á réttum forsendum. Það þýðir ekkert að koma eins og gargandi krakki og heimta að sveitarstjórnin setji málið eins og það leggur sig í pappírstætarann. Málið er í eðlilegum stjórnsýslulegum farvegi. Ég mæli með því að menn kynni sér hvað stendur til að gera og komi í framhaldi af því með rökstuddar athugasemdir. Það tel ég vera hinn eðlilega gang mála, en ekki að hóta með þeim hætti sem gert hefur verið, áður en endanleg tillaga kemur fram. Auk þess hefur verið gengið svo hart fram í þessari mótmælasöfnun, að menn hafa nánast verið neyddir til þess að skrifa undir, hver á fætur öðrum,“ sagði Péutr.

Hann segir að undirskriftalistinn hafi ekki verið gerður opinber og því viti engir nema þeir sem standa fyrir söfnuninni hvaða nöfn eru á listanum.

Pétur segir að áhrifin af þeim tveimur hótelbyggingum við Mývatn sem standi fyrir dyrum séu jákvæð. „Íslandshótel eru að byggja 90 herbergja hótel hérna við hliðina á Hótel Reynihlíð og viðbyggingin við Hótel Reykjahlíð verður um helmingur þess hótels í herbergjafjölgun. Hótel Reykjahlíð er minnsta hótelið í Mývatnssveit og verður það áfram.

Hér heima fyrir finnst mér menn ekki almennt átta sig á því hvaða bylting er að verða í ferðaþjónustunni.

Þessar miklu fjárfestingar sem áformaðar eru hér munu þýða stóraukið framboð á störfum og þetta mun styrkja búsetuskilyrði hér á svæðinu mjög mikið. Sem er auðvitað gríðarlega jákvætt. Það er dapurlegt að margir sem búsettir eru í Mývatnssveit átta sig ekki á því hvað ferðamennskan er mikilvæg fyrir Mývatnssveit. Ef við hefðum ekki ferðamenn á þessu svæði þá væri engin búð eða bensínstöð í Mývatnssveit, svo dæmi séu tekin,“ sagði Pétur. Hann bendir á að fyrir 20 árum hafi verið 600 manna samfélag á Mývatni, sem nú sé komið niður undir 300. Við þá uppbyggingu sem nú sé á döfinni muni störfum í Mývatnssveit fjölga um allt að 150. Það muni um minna.

Tölvugerð mynd sem sýnir hvernig viðbygging Hótels Reykjahlíðar beggja vegna …
Tölvugerð mynd sem sýnir hvernig viðbygging Hótels Reykjahlíðar beggja vegna gamla hótelsins á að líta út.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert