Eftirlýstur með læti á slysadeild

Óskað var eftir aðstoð lögreglu á slysadeild um hálftólfleytið í gærkvöldi, vegna karlmanns sem þar var með læti. Við frekari athugun kom í ljós að maðurinn var þegar eftirlýstur af lögreglu. Hann var því handtekinn og færður í fangageymslu og verður síðan yfirheyrður nú fyrir hádegi.

Þá barst lögreglu tilkynning um þrjúleytið í nótt um mann í annarlegu ástandi í miðbænum. Maðurinn var ofurölvi og var búinn að skemma a.m.k. eina bifreið. Hann gat ekki gert grein fyrir sér og var því handtekinn og vistaður í fangageymslu þar til unnt verður að ræða við hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert