Aldrei hafa fleiri sagst ætla að ferðast utanlands í sumarfríinu frá því að mælingar hófust. Þetta leiðir könnun MMR á ferðahögum Íslendinga í sumarfríinu í ljós. Könnunin var framkvæmd dagana 15. til 22. júlí 2016 og alls svöruðu könnuninni 906 einstaklingar, 18 ára og eldri.
Færri segjast ætla að ferðast innanlands í sumarfríinu en síðustu ár en 85% svarenda sögðust ætla að ferðast yfir höfuð í sumarfríinu. Þá eru íbúar höfuðborgarsvæðisins líklegri til að ferðast innanlands en þeir sem búa á landsbyggðinni.
Sögðust 49,6% þeirra sem tóku afstöðu ætla að ferðast utanlands í sumarfríinu og þar af sögðust 14,4% eingöngu ætla að ferðast utanlands. Til samanburðar sögðust 35,2% ætla að ferðast utanlands árið 2013 en þar af sögðust 7,1% eingöngu ætla að ferðast utanlands sama ár.
Nokkur munur reyndist á ferðahögum eftir stjórnmálaskoðunum en þeir sem að sögðust styðja Framsóknarflokkinn voru líklegastir til að ferðast í sumarfríinu en þeir sem sögðust styðja Samfylkinguna voru ólíklegastir. Þá eru kjósendur Bjartrar framtíðar líklegastir til að ferðast innanlands eða 81,1% en stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins ólíklegastir eða aðeins 69,5%.
Frá því 2013 hefur þeim sem sögðust ætla að ferðast innanlands í sumarfríinu fækkað en þá sögðust 82,8% ætla að ferðast innanlands í sumarfríinu, borið saman við 70,9% nú. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 14,7% ekki ætla að ferðast neitt í sumarfríinu samanborið við 16,0% í fyrra.
Nánari upplýsingar um niðurstöður könnunarinnar má nálgast á vefsíðu MMR.