Fyrst umhverfis hnöttinn

Skútan Hugur kom til Reykjavíkur í gær að lokinni hringferð …
Skútan Hugur kom til Reykjavíkur í gær að lokinni hringferð um hnöttinn mbl.is/Árni Sæberg

Hjónin Kristófer Oliversson og Svanfríður Jónsdóttir komu til Reykjavíkurhafnar á skútu sinni Hugi í gær eftir ferðalag kringum hnöttinn í keppninni World ARC – Around the World Rally, sem byrjaði og endaði á Sankti Lúsíu í Karíbahafinu.

Ferðin gekk stóráfallalaust fyrir sig og ekkert stoppaði förina. Tókst hjónunum meðal annars að ráða niðurlögum elds, bregðast við leka og búa um rifin segl.

Hugur er fyrsta skútan til að sigla kringum jörðina undir íslensku flaggi, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert